ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Líkt og ég sagði áðan er óskiljanlegt með öllu að þeir sem skipa þessa stjórnarflokka og fleiri flokka skuli ekki hlusta á gamla forystumenn sína með alla þessa reynslu. Á sama hátt þykir manni ótrúlegt að t.d. þingmenn Sjálfstæðisflokksins skuli ekki hlusta á núverandi og fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins sem vara eindregið við þessu. Vegna þess að það er í sjálfu sér að koma á daginn að þessi samningur, eins og EES-samningurinn kannski í heild, er svona líkastur seigfljótandi sírópi.
Hann leggst yfir og hann breiðir úr sér yfir bæði svið og lönd með einhverjum þeim hætti að það virðist ekki vera hægt að sporna við. Þetta segi ég af því að ég er hérna með kort af Evrópu með þessari ágætu frétt sem ég var að lesa upp úr, þar sem maður segir: Ef þú hellir sírópi í miðja Evrópu þá flæðir það náttúrlega út og yfir án þess að nokkur fái, að því er virðist, rönd við reist.
Málið er hins vegar það og það er það sem við höfum haft frammi í þessari umræðu allan tímann. Ef menn vilja fá niðurstöðu sem er hagfelld þeim sjálfum verða menn að hafa kjark til að standa upp fyrir sjálfum sér. Ef menn hafa ekki kjark til þess að standa upp fyrir sjálfum sér þá gerir það enginn annar fyrir þá. Þessi kjarkur er jafn, hvað á ég segja, lítt fundinn núna, ekki vandfundinn, heldur lítt fundinn núna eins og hann var síðast þegar við Íslendingar stóðum frammi fyrir stórri erlendri ásælni þar sem við þurftum að standa upp fyrir (Forseti hringir.) sjálfum okkur. Illu heilli þá voru (Forseti hringir.) stjórnvöld þess tíma gjörsamlega (Forseti hringir.) kjarklaus í því máli.