ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég lít á það sem svo að setningin „á öllum tímamótum“ hafi verið ákveðið grundvallaratriði í þessari fyrirspurn, sem kemur reyndar inn á atriði sem ég hugðist ræða nánar í ræðu síðar í dag, þ.e. hvernig við styrkjum EES-samstarfið sem best. En fyrst hv. þingmaður innir mig eftir þessu, eins og eðlilegt er í ljósi orða minna áðan, þá held ég að það sé alveg óhætt að setja hlutina í samhengi með því að benda á að það sama hlýtur að eiga við í samstarfi sem gengur út á samstarf heilu þjóðanna, jafnvel þjóðabandalaga, og svo í sinni smæstu mynd í sambandi tveggja einstaklinga.
Ef ágreiningur væri t.d. meðal hjóna um hvernig ætti að túlka tiltekið atriði þá væri ekki skynsamlegt að menn einfaldlega slepptu því að ræða það og litu svo á að nefna það að menn myndu vilja gera hlutina einhvern veginn öðruvísi, það væri til þess fallið að storka sambandinu. Það sama á við um EES-samninginn.
Ef við förum að líta á samninginn þannig að hann sé þess eðlis að okkur sé ekki einu sinni óhætt að nota þessi jákvæðu og mikilvægu ákvæði hans um samtal og samstarf og að finna lausn, sáttaferli, ef við förum að líta svo á að það að nýta þessi skýru ákvæði sé á einhvern hátt hættulegt og geti orðið til þess að menn refsi okkur fyrir það, þá erum við fyrst að setja EES-samninginn í verulega hættu og búa til fordæmi til framtíðar um að þegar koma upp ný álitamál þá verði sífellt erfiðara og erfiðara að ræða (Forseti hringir.) málin og tala sig inn á lausn.