ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið.
Í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið segir í 93. gr., með leyfi forseta:
„1. Sameiginlegu EES-nefndina skipa fulltrúar samningsaðila.
2. Ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar skulu teknar með samkomulagi milli bandalagsins annars vegar og EFTA-ríkjanna, sem mæla einum rómi, hins vegar.“
Ef ég rýni þessi orð getur það varla verið svo að eitt af EFTA-ríkjunum skuli taka sig út úr og mæla einhverjum allt öðrum rómi. Það er beinlínis áskilnaður í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að þetta sé gert þannig að allir geti við unað. Ég myndi vilja túlka þessa grein sem svo að það sé ófært fyrir okkur að setja þessa fyrirvara, eins og reyndar hefur orðið uppvíst aftur og aftur. Enginn hefur getað komið hingað og bent okkur á að hægt sé að setja fyrirvara sem síðan standist vegna þess að þeir eru bara til heimabrúks. Þessir fyrirvarar sem verið er að setja eru í yfirlýsingum stjórnmálamanna ekki til ama vegna þess að þeir skipta engu máli. Þeir munu aldrei verða ásteytingarsteinn fyrir innleiðingu þessa pakka.
Með leyfi forseta, segir í 97. gr.:
„Með fyrirvara um meginregluna um jafnræði, og eftir að öðrum samningsaðilum hafa verið veittar upplýsingar þar um, hefur samningur þessi ekki áhrif á rétt einstakra samningsaðila til að breyta innlendri löggjöf á þeim sviðum sem samningurinn tekur til:
ef sameiginlega EES-nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að löggjöf, eins og henni hefur verið breytt, hafi ekki áhrif til hins verra á framkvæmd samningsins; eða
ef skilyrðum 98. gr. hefur verið fullnægt.“ (Forseti hringir.)
Ef þetta hefur ekki (Forseti hringir.) áhrif á framkvæmd (Forseti hringir.) samningsins til hins verra, ergo: Fyrirvararnir eru (Forseti hringir.)…
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á tímamörk.)