149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:55]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Í fyrri ræðum í þessu máli, um þriðju orkutilskipun Evrópusambandsins, hef ég fjallað um nokkur álitaefni, þar á meðal um þann stjórnskipulega fyrirvara sem við Íslendingar settum við innleiðingu regluverksins fyrir sameiginlegu EES-nefndinni og ætlunin er að aflétt verði með þessari þingsályktunartillögu sem hér er til umfjöllunar.

Herra forseti. Einnig hef ég fjallað um þann lagalega fyrirvara, eða kannski er réttara að orða það sem svo að ég hafi fjallað um þá lagalegu fyrirvara, sem stjórnarliðar hafa tínt til að nú þegar séu til staðar eða settir verði í málinu svo við hér á Íslandi verðum ekki bundin af regluverki þriðja orkupakkans, ekki bundin af ákveðnum hluta af þessu regluverki.

Einnig hef ég í fyrri ræðum fjallað um hversu fráleitt það sé að innleiða regluverkið en halda því fram á sama tíma að við séum undanþegin því. Þá hef ég fjallað um hvaða tilgangi það þjóni að halda því á lofti við þjóðina að við getum komist undan regluverki sem við samt samþykkjum á sama tíma. Hvaða tilgangi þjónar það? Ég hef einnig leitast við að benda á hversu nýting fallvatnanna sé samofin íslenskri þjóðarsál og ekki síður hversu nýting þeirrar auðlindar hefur verið í raun máttugasta byggðastefnan.

Herra forseti. Í þessari ræðu hef ég áhuga á að tengja þetta betur í tíma og einnig að benda á hversu stórstígar framfarir hafa orðið í beinum tengslum við virkjunarsögu okkar Íslendinga. Framfarirnar hafa orðið stórkostlegar, bara á síðustu 50 árum. Um leið og þær staðreyndir eru skoðaðar má hverjum manni verða ljóst hve auðvelt er að benda á samhengi við ekki bara framfarir heldur einnig lifnaðarhætti, bættan almannahag, framfarir, uppbyggingu allra handa innviða og stórstíg skref á öllum sviðum. Því er vert að renna stuttlega yfir virkjunarsögu okkar.

Í upphafi síðustu aldar hófust framsýnir menn handa við að virkja vatnsaflið sem alls staðar rann óbeislað fram hjá þeim. Þetta var í upphafi gert af miklum vanefnum hvað varðar tæki og tól og oft og tíðum var langt að sækja þekkingu. En þessir menn gáfust ekki upp. Einna fyrstur til að koma sér upp vatnsaflsstöð var Jóhannes Reykdal árið 1904, en hann átti trésmíðaverkstæði í Hafnarfirði og tengdi rafstraumsrafal við vatnshjólið sem knúði vélarnar og framleiddi þannig rafmagn sem notað var til að lýsa upp verkstæðið hjá honum og á annan tug húsa í nágrenninu.

Jóhannes var ekki einn um þetta áhugamál. Margir unnu að því sama í sínum sveitum. Þannig voru Skaftfellingar á undan mörgum öðrum að nýta bæjarlækina. Einn af frumkvöðlum Skaftfellinga var Bjarni Runólfsson í Hólmi, rétt vestan við Kirkjubæjarklaustur. Hann setti upp 31 heimarafstöð á 12 ára tímabili og samtals 116 slíkar á sínum tiltölulega stutta ferli. Var hann athafnasamastur á árunum 1927–1937 en hafði fyrir þann tíma sett upp margar rafstöðvar í Skaftafellssýslum.

Þannig var á þeim árum, fyrir 1920, einnig reist rafstöð við Búðará við Húsavík. En fyrsta stóra virkjunin, herra forseti, ef nota má það orð um virkjun sem í dag er næsta örsmá í samanburði við þær stórvirkjanir sem við höfum reist frá þeim tíma, er virkjun Elliðaánna í Reykjavík 1921 sem var 3,2 megavött að stærð, sem var á þeim tíma langstærsta virkjunin. Síðan kemur langt hlé, 16 ára hlé, þar til tekin var í notkun virkjun við Ljósafoss á Suðurlandi og þar var aflið 16 megavött. Var það auðvitað langstærsta virkjun á þeim tíma fyrir stríð. Laxárstöðin á Norðurlandi, sem hefur verið tekin í notkun smám saman, er í dag með 27,5 megavatta afl. Síðan eftir stríð koma margar litlar virkjanir eins og Skeiðsfossvirkjun, Andakíll, Þverárvirkjun, Írafoss sem var stærst á sínum tíma, 1953, með 48 megavött. (Forseti hringir.) Og svo má áfram telja og ég held áfram í minni næstu ræðu.