ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir fyrirtaksræðu. Í inngangi ræðu sinnar ræddi hann um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og hina margumtöluðu fyrirvara. Ég hef komið nokkuð inn á þá, bæði í einni ræðu og í andsvörum, og er þó ekki búinn.
En samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið geymir ansi margt, m.a. er í 3. kafla talað um 3. þátt: Lausn deilumála. Í 111. gr. segir, með leyfi forseta:
„1. Bandalagið eða EFTA-ríki getur lagt deilumál er varðar túlkun eða beitingu samnings þessa fyrir sameiginlegu EES-nefndina í samræmi við eftirfarandi ákvæði.“
Í 2. mgr. segir:
„2. Sameiginlegu EES-nefndinni er heimilt að leysa deilumálið. Henni skulu gefnar allar upplýsingar sem hún kann að þarfnast til þess að framkvæma nákvæma rannsókn á málinu, með það fyrir augum að finna lausn sem aðilar geta sætt sig við.“ — Gríðarmikil áhersla, eins og kom fram í máli hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar áðan, er lögð á sáttina. — „Í þessum tilgangi skal sameiginlega EES-nefndin rannsaka alla möguleika til að viðhalda góðri framkvæmd samningsins.“
Telur hv. þingmaður einhverjum vafa undirorpið að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið fjalli á mjög eindreginn hátt um að við skulum fara þá leið sem hann kveður á um í málum sem þessum?