ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Já, nú er það svo að ég hef ekki verið að lesa hér aftur og aftur upp sömu greinina. Það er beinlínis áskilnaður í samningnum um að við förum þessa leið.
Hv. þingmaður kemur inn á að rétt væri að við færum þessa leið og að þar myndum við mæta skilningi. Mig langar til að vitna í fylgiskjal IV, g-lið, 1. töluliðar XII. viðauka við samninginn, sem er mjög lýsandi dæmi um það að við höfum mætt mjög miklum skilningi hjá sameiginlegu EES-nefndinni. Það hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Þrátt fyrir 40. gr. samningsins og ákvæði þessa viðauka er Íslandi heimilt að beita áfram þeim höftum sem eru í gildi við undirritun samningsins um eignarrétt erlendra aðila og/eða eignarrétt aðila sem ekki eru búsettir á Íslandi á sviði fiskveiða og fiskvinnslu.“
Í 2. mgr. segir:
„Þessi höft skulu ekki koma í veg fyrir fjárfestingar erlendra aðila eða ríkisborgara sem eru ekki með lögheimili á Íslandi í félögum sem taka aðeins á óbeinan hátt þátt í fiskveiðum eða fiskvinnslu. Þó hafa innlend yfirvöld rétt til að skuldbinda fyrirtæki sem hafa að hluta eða að öllu leyti verið keypt af erlendum aðilum eða ríkisborgurum sem ekki eru með lögheimili á Íslandi til að losa sig við fjárfestingar í starfsemi á sviði fiskvinnslu eða í fiskiskipum.“
Ég verð að segja að ef þetta er ekki dæmi um eindreginn samningsvilja EES um sérstöðu Íslendinga, þá hvað? Þarna er rætt um auðlindina okkar, yfirráð og vinnslu sem er algjörlega sambærilegt við það mál sem við ræðum hér í dag, algjörlega sambærilegt.
Menn tala hér um pólitíska óvissuför. Hér er bara lifandi dæmi. (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður að þetta geti orðið eitthvað skýrara?