149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Sérlega virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir enn eina góða ræðu. Hann kom aðeins inn á mál sem hann gerði talsvert að umtalsefni í fyrstu ræðu sinni, sem er saga orkumálanna, ekki hvað síst með tilliti til Íslands, og tengsl þeirra við fullveldi landsins.

Einhverjir myndu eflaust halda því fram að þetta væri óhófleg rómantík hjá hv. þingmanni og óhófleg þjóðrækni. En ég er ekki sammála því og langar að heyra álit hv. þingmanns á því hvort ekki séu einmitt sterk tengsl milli þeirrar áherslu sem fyrri kynslóðir lögðu á eignarhald á fallvötnum og nýtingu þeirra, framleiðslu orku hér innan lands, og svo efnahagslegs árangurs landsins og þess ótrúlega árangurs sem Ísland hefur náð, fyrir borgara þessa lands, í að bæta lífskjör jafnt og þétt. Saga Íslands á fullveldistímanum er nánast einsdæmi hvað varðar hraða framfara.

Getur hv. þingmaður tekið undir það að þessi áhersla fullveldissinna á orkuna og nýtingu hennar hafi einmitt haft mjög verulegt praktískt og raunverulegt gildi en ekki bara rómantískt gildi; og að orkan sé og hafi reynst undirstaða atvinnuuppbyggingar á nánast öllum öðrum sviðum? Enda þarf orku til að knýja atvinnulífið áfram, skapa störf, búa til verðmæti og þar með tryggja betri lífskjör í landinu.