149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:11]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hugleiðingarnar og spurninguna. Þetta átti að verða næsta ræða mín, nákvæmlega það sem hv. þingmaður var að spyrja um, þ.e. að tengja þetta betur við samfélagið í gegnum síðustu áratugi, frá því að við hefjum þá vegferð að virkja fallvötnin smám saman til hagsbóta fyrir landsmenn. Það byrjaði smátt en jókst, eins og ég kom inn á í fyrri ræðu minni.

Ég held því fram, og mun rökstyðja það í seinni ræðum mínum, að sterk tengsl, áþreifanleg tengsl, séu til staðar við byggðasögu landsins og eflingu byggða og raunverulega björgun byggðanna; þ.e. að virkjanirnar og uppbygging dreifikerfisins hafi í raun lagt mjög mikið af mörkum til bjargar byggð í landinu, í hinum dreifðu byggðum. Og einnig varðandi atvinnuuppbyggingu. Við höfum næstum alla lýðveldissöguna haft næga atvinnu, með örfáum undantekningum sem ekki spanna langan tíma.

Það er fyrst og fremst, að mínu mati, virkjun fallvatnanna að þakka.

Auðvitað hvílir samfélagið á fleiri sterkum stoðum eins og fiskveiðum. En þetta er stór þáttur og kannski höfum við ekki almennilega opnað augun fyrir því hversu stór þáttur þetta er í þessari sögu allri og mætti kannski tengja það enn þá betur.