149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:15]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Jú, það er einmitt það sem ég ætlaði mér með því að færa þetta fram og mun gera það í seinni ræðum. Ég vil einnig benda á þau huglægu tengsl sem ég tel vera þarna á milli. Þegar svona lítil þjóð, sem má nánast kalla örþjóð, ákveður það upp úr 1960, þegar við vorum helmingi færri en í dag, að ganga í stórvirkjun á þeirra tíma mælikvarða, byggja upp dreifikerfi og selja orkuna til stóriðju, þá er það gert í sátt við þjóðina að því leyti til að menn sættust á þetta í því augnamiði að síðar meir, einhverjum áratugum síðar, myndi þetta gagnast þeim kynslóðum sem þá yrðu uppi. Það eru þau huglægu tengsl sem ég vil leiða fram í mínu máli.