ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna, þann sögulega fyrirlestur sem hann flutti okkur varðandi smávirkjanir í Skaftárhreppi og það frumkvöðlastarf sem þar var unnið, sem er mjög merkilegt og sýnir hvað menn hafa verið framsæknir í því ágæta sveitarfélagi og þeim landshluta.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann í þessu sambandi: Er það ekki áhyggjuefni að nú fjölgar mjög beiðnum og umsóknum um smávirkjanir og virkjunarkosti? Er það ekki áhyggjuefni út frá náttúruverndarsjónarmiðum? Nú kemur það spánskt fyrir sjónir að flokkur sem leiðir þessa ríkisstjórn, Vinstri grænir — eitt af þeirra aðalsmerkjum hefur verið umhverfisvernd og þeir hafa látið umhverfismál til sín taka. Á sama tíma eru þeir að innleiða þessa orkutilskipun sem felst í því að undirbúa jarðveginn fyrir það sem koma skal, þ.e. að við verðum þátttakendur í þessu markaðssvæði Evrópu hvað raforku varðar. Það er verið að stíga eitt og eitt skref og það er verið að stíga nokkuð stórt skref með þessari innleiðingu. Þá er allur jarðvegur tilbúinn varðandi sæstreng þegar hann kemur. Það eitt og sér mun náttúrlega ýta undir það að í landinu verði framleitt meira rafmagn, væntanlega með tilheyrandi umhverfisáhrifum.
Mig langaði að velta þessu fyrir mér, af því að hv. þingmaður nefndi smávirkjanir í þessu sambandi, hvort hann telji ekki að það sé áhyggjuefni að virkjunarkostum muni fjölga mjög í framtíðinni.