149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:47]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Jú, það er akkúrat málið og til þess er leikurinn gerður með þessari ræðu og reyndar mörgum öðrum sem áður hafa verið fluttar. Ég er að reyna að skyggnast inn í fimmta orkupakkann, ég er að reyna að taka sýnina aðeins lengra. Hér hefur aðeins verið rætt um fjórða orkupakkann og það sem kann að finnast í honum og í þeim þriðja reyndar líka.

Hér hefur engin umræða fengist við þá sem eru fylgjendur pakkans um það hvers sé að vænta. Annaðhvort er það vegna þess að menn hræðast umræðuna og vita ekki hvernig þeir eigi að fylgja máli sínu eftir eða að menn hafa hreinlega ekki kynnt sér það. Ég tel það nú ólíklegt vegna þess að hér er mikið og gott val frómra manna og kvenna sem eru vel upplýst í flestum málum.

Það fær mann til að velta fyrir sér hvers vegna í ósköpunum fólk vilji ekki — af því að nú höfum við verið í dagsbirtu sem er nýlunda í þessari umræðu, fólk hefur getað verið hér að degi til og tekið þátt í þessari umræðu: Af hverju vill fólk ekki ræða það sem fram undan er?

Ég held að það sé alveg hárrétt og ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni að auðvitað væri eðlilegt að lögð væru á borð fyrir þingmenn drög að orkupakka fjögur, í það minnsta, svo að við gætum kynnt okkur hvers er að vænta og gætum þá tekið upplýsta ákvörðun um það hvort það sé eitthvað í framtíðinni sem við þurfum hreinlega að taka afstöðu til við afgreiðslu þessa máls.