149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 4. þm. Reykv. s., Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, um að hún verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag, miðvikudaginn 22. maí, tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Olga Margrét Cilia. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.