149. löggjafarþing — 108. fundur, 22. maí 2019.
breyting á starfsáætlun.
Forsætisnefnd ákvað í dag að gera þá breytingu á starfsáætlun Alþingis að þingfundir verði að afloknum nefndafundum fimmtudaginn 23. maí og föstudaginn 24. maí, en báðir þessir dagar voru ætlaðir eingöngu til nefndafunda samkvæmt starfsáætlun. Miðað er við að þingfundir geti hafist síðdegis báða dagana.