149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

langir þingfundir.

[15:03]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti er mjög spenntur fyrir því að finna leiðir til að nýta tíma þingsins betur og þiggur góð ráð frá mönnum með mikla skipulagshæfileika. En þegar þannig háttar til að menn þurfa að ræða málin ítarlega og lengi er lítið annað að gera en að lengja þingfundi. Það hefur nú forseti áður tekið fram í því samhengi sem við störfum í núna.

En ég tek undir með hv. þingmanni að starfsfólk Alþingis á mikinn heiður skilinn fyrir dugnað sinn og ósérhlífni.