149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

langir þingfundir.

[15:03]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég tel rétt að árétta að það var meiri hluti forsætisnefndar sem ákvað þá ráðstöfun í morgun, bara svo að það sé sagt. Að öðru leyti vil ég segja að sú ráðstöfun mun að mati þess sem hér stendur í sjálfu sér ekki greiða fyrir þingstörfum að öðru leyti. Hætt er við að ráðstöfun eins og þessi setji störf þingsins almennt í uppnám, sem við viljum náttúrlega öll forðast. En það kemur bara í ljós. Auðvitað er það þannig að þegar fundir eru settir með þessum hætti nýtum við tímann sem best við getum, við sem höfum nýtt tíma þingsins undanfarið. Við erum að ræða mál sem 63% þjóðarinnar eru sammála okkur í og við viljum tala við þann hóp og sýna fram á að þingið hlusti, eða að hluti þingsins hlusti á það sem þjóðin hefur að segja.