langir þingfundir.
Það er gott að heyra að fundarstjórn forseta tókst svo vel í gærkvöldi, nótt og í morgun að ekki voru gerðar við hana athugasemdir. Ákvörðun forsætisnefndar í hádeginu í dag er eingöngu heimild til að efna til funda ef á þarf að halda.
Tekið var tekið skýrt fram að verið væri að afla heimildar til þess að bæta við þingfundum síðdegis á fimmtudag og föstudag ef á þyrfti að halda. Greiðist úr málum og nýtist okkur t.d. dagurinn í dag og kvöldið vel og við séum orðið sátt við uppskeruna sem þessi dagur skilar getum við endurmetið hvort við þurfum fundi á fimmtudag og föstudag. Það var tekið skýrt fram.