149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

langir þingfundir.

[15:07]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Forseti. Mig langar að biðja forseta um að hlutast til um að auðvelda okkur aðeins störfin hér á Alþingi. Á þeim 19 klukkustundum, sem hér var rætt um áðan, og reyndar fleiri tímum, höfum við sett fram fjölmargar spurningar til stjórnarþingmanna. Þeim hefur sjaldan og bara alls ekki verið svarað á nokkurn einasta hátt.

Ég er með þá hugmynd að forseti grípi til þess ráðs, sem hann þekkir mætavel, að fá einhvern aðila úti í bæ til að prenta upp hið talaða orð. Hann getur sjálfsagt hlustað á þessar upptökur og prentað þær þannig upp, tekið þær síðan og dreift til þeirra þingmanna sem fengið hafa spurningar og hvatt þá til að koma hér og liðka fyrir þingstörfunum. Ef ekki gengur að fá starfsfólk Alþingis til þess þá getur hann eflaust fengið verktaka til þess.