149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

langir þingfundir.

[15:08]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég kem hér upp með þá beiðni að við Miðflokksþingmenn getum átt orðastað við hv. þingmenn Bryndísi Haraldsdóttur og Vilhjálm Árnason. Við óskuðum eftir því í umræðum í nótt að þau kæmu í salinn til að svara því sem við viljum meina að séu rangfærslur í blaðagreinum sem hv. þingmenn hafa sett fram. Ég óska hér með eftir því að forseti beiti sér fyrir því að þessir þingmenn verði hér í salnum til að geta þá leiðrétt rangfærslurnar, ef svo ber undir. Ég óska eftir því að hæstv. forseti beiti sér fyrir þessu svo að umræðan geti áfram orðið málefnaleg og öllum fyrirspurnum svarað sem við Miðflokksþingmenn teljum að ekki hafi verið gert.