fyrirvarar Norðmanna við þriðja orkupakkann.
Forseti. Svarið er einfalt, það eru þeir allir. En fyrst hæstv. ráðherra byrjaði á því að vísa á hæstv. utanríkisráðherra hefði ég gjarnan viljað spyrja hann um þetta. En hann er týndur. Það hefur ekkert til hans spurst eða a.m.k. lítið frá því þessi umræða hófst hér. Því verður maður að leita til formanns flokks þess ráðherra. En ég skildi svar hæstv. fjármálaráðherra sem svo að hann hafi ekki kynnt sér norsku fyrirvarana en þar kemur m.a. fram að Norðmenn krefjist þess að fá sjálfir að ráða því hvort sæstrengjum verður bætt við, nýjum raforkutengingum bætt við evrópska markaðinn. Margir þessara fyrirvara ganga raunar gegn því sem stefnt er að með þriðja orkupakkanum, enda hafa, eins og ég nefndi áðan, Norðmenn ekki einu sinni fengið svör við því. Við fengum ekki svör við því hvers vegna íslenska ríkisstjórnin hefði ákveðið að leggja fram miklu veikari fyrirvara en norska Stórþingið, ekki einu sinni lagalega fyrirvara heldur einhverjar athugasemdir um að menn geri svona almenna fyrirvara við þetta til framtíðar.