149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

almannatryggingar.

[15:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég hygg að hv. þingmaður, þegar hann segir hálfur og hálfur, sé að vísa til þess að hægt sé að skipta réttindum. Það er lagabreyting sem var hugsuð á sínum tíma til að auka sveigjanleika og valfrelsi í kerfinu. Ég á erfitt með að skilja að menn finni hjá sér þörf til að gagnrýna kerfisbreytingu sem við litum á sem umbótamál til að auka valfrelsi fólks og horfa til þess að aðstæður fólks geti verið misjafnar og sumum hentaði að nýta sér þennan sveigjanleika á meðan aðrir myndu einfaldlega kjósa að gera það ekki. Að öðru leyti heyrist mér að hér sé á ferðinni gagnrýni á skerðingu vegna lífeyristekna og ég held að við getum verið sammála um að það getur komið illa út í einstaka tilvikum hvernig skerðingarreglurnar eru. Þær eru tilraun, af veikum mætti, til að tryggja að fjármunirnir dreifist sem mest til þeirra sem hafa minnst.