örorkubætur og atvinnuleysisbætur.
Virðulegur forseti. Hæstv. félagsmálaráðherra þekkir kjör öryrkja, eða ég trúi ekki öðru. Það er vansæmd að því hvernig við höfum búið að þessum hópi mörg undanfarin ár og gerum enn. Öryrkjar á Íslandi eru þeir samfélagsþegnar sem lakast er búið að á öllum Norðurlöndunum og það má leita víðar, það leyfi ég mér að fullyrða. Þetta á sérstaklega við um þá sem hafa orðið öryrkjar ungir. Þeir eru með lítil sem engin lífeyrisréttindi gegnum þátttöku á vinnumarkaði og eignastaða þeirra er verulega rýr.
Virðulegur forseti. Nú er svo komið að atvinnuleysisbætur þeirra sem eru með 100% bótarétt eru orðnar umtalsvert hærri en örorkubætur. Atvinnuleysisbætur eru almennt hugsaðar til að brúa tímabundið bil í atvinnuþátttöku meðan örorkubætur eru hugsaðar sem framfærsla til lengri tíma, eins og raunin hefur verið. Hlutskipti fjölmargra öryrkja er að skrimta á lágum örorkubótum, ekki bara örfá misseri heldur áratugum saman, jafnvel frá unga aldri eða miðjum aldri, fram til 67 ára aldurs.
Það er ekkert annað en lítilsvirðing sem býr að baki þeirri ákvörðun stjórnvalda að hækka atvinnuleysisbætur umfram örorkubætur, lítilsvirðing gagnvart þessum viðkvæma hópi. Hvað ætlar ráðherra að gera? Finnst honum þetta í lagi? Fáum við enn að heyra að málið sé í vinnslu eins og hann hefur talað um í nærri tvö ár? Unir ráðherra því að öryrkjar búi áfram og um óákveðinn tíma við sult og seyru eins og raunin er? Hvernig getur hæstv. ráðherra horft kinnroðalaust framan í öryrkja og sagt: Verið róleg, þetta er allt að koma? Sami ráðherra og segist vera í stjórnmálaflokki sem á tyllidögum hampar slagorðum um félagslegt réttlæti. Hvenær mega öryrkjar vænta réttlætis? Hvenær geta öryrkjar vænst þess að standa í það minnsta jafnfætis þeim sem eru á atvinnuleysisbótum, svo ekki sé meira sagt?