149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

örorkubætur og atvinnuleysisbætur.

[15:26]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni fyrirspurnina. Eins og þingmaðurinn veit höfum við á fjárlögum yfirstandandi árs 2,9 milljarða til ráðstöfunar til að bæta kjör örorkulífeyrisþega. Þeir fjármunir voru ætlaðir samhliða því sem tekin yrði ákvörðun um að fara í ákveðna kerfisbreytingu. Í tengslum við það er gert ráð fyrir því að þeim fjármunum verði ráðstafað á yfirstandandi ári og hefur ráðuneytið unnið að því hvernig þeim fjármunum verður ráðstafað. Þar er reyndar gert ráð fyrir því að þeim verði í talsvert miklum mæli ráðstafað til þess að draga úr skerðingum í kerfinu, krónu á móti krónu skerðingum. En út frá því er unnið og út frá gildandi fjárlögum þar sem við erum með 2,9 milljarða. Gert er ráð fyrir því í fjármálaáætlun að við verðum með 4 milljarða á næsta ári. Hún er nú til meðhöndlunar í þinginu. Menn eru væntanlega að rýna hana.

Það má því segja varðandi það fjármagn sem fyrir liggur í fjárlögum að við munum kynna frumvarp sem gerir ráð fyrir því að sú fjármögnun verði nýtt til að bæta kjör örorkulífeyrisþega. Jafnframt gerum við ráð fyrir því að á næsta þingi verði hægt að kynna frumvarp að breyttu kerfi almannatrygginga sem miði að því að styðja betur við fólk, ungt fólk sérstaklega og fólk sem fer á örorku og við viljum að sé á vinnumarkaði lengur.

Eins og sakir standa í dag erum við með 2,9 milljarða á yfirstandandi ári. Gert ráð fyrir því að kynna frumvarp til að ráðstafa þeim fjármunum og þar verður fyrst og fremst horft til þess að draga úr skerðingum og auka hvata til að sækja vinnu.