örorkubætur og atvinnuleysisbætur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Getur hæstv. ráðherra staðfest að auk þeirra 2,9 milljarða sem til ráðstöfunar eru, og voru skertir frá því sem upphaflega var ætlað, séu til ráðstöfunar á þessu ári og að þessir 4 milljarðar verði ekki skertir í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að ná endum saman?
Mig langar jafnframt að spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær hækka bætur öryrkja, eins og ráðgert var um síðastliðin áramót og lofað var að tæki gildi 1. apríl en hefur ekki verið gert? Er ekki alveg ljóst að bæta þarf við fjármunum til að hækka lífeyri til samræmis við nýgerða kjarasamninga, hina svokölluðu lífskjarasamninga sem virðist ekki ná til nema hluta þegnanna? Starfshópur um nýtt örorkukerfi skilaði verkefninu af sér en náði ekki saman. Er ekki ljóst að það þarf að fara að vinna að því að styrkja allt kerfið í kringum (Forseti hringir.) örorkumatið, m.a. Vinnumálastofnun? Er það starf hafið og ef ekki (Forseti hringir.) hvenær mun það hefjast og hvernig verður því háttað og hvenær er áætlað að því starfi muni ljúka?
Ég óska eftir því að hæstv. ráðherra svari skýrt og greinilega. (Forseti hringir.) Ég held að hann skuldi öryrkjum það a.m.k.