örorkubætur og atvinnuleysisbætur.
Virðulegur forseti. Það liggur ljóst fyrir að það eru 2,9 milljarðar til ráðstöfunar á þessu ári. Það er í undirbúningi frumvarp sem vonandi verður hægt að leggja fram á næstu dögum. Ég geri mér grein fyrir því að stuttur tími er eftir af þinginu en vonandi auðnast okkur að afgreiða það mál hratt og vel. Gert er ráð fyrir því að það séu 4 milljarðar í fjárlögum næsta árs. Ekki eru nein áform um að draga úr þeim fjárveitingum, gert er ráð fyrir þeim í fjármálaáætlun og ráðuneytið hefur verið að vinna út frá því.
Þetta voru margar spurningar. Varðandi lífskjarasamninginn og hvenær eigi að tryggja hækkanir til örorkulífeyrisþega og að það sé ekkert í lífskjarasamningi, þá eru fjölmargir þættir í lífskjarasamningi ríkisstjórnarinnar sem lúta að öllum þjóðfélagshópum og lægstu hópunum sérstaklega, til að mynda skattkerfisbreytingar. Ég fundaði nýverið með Öryrkjabandalaginu sem tók það sérstaklega fram að það væru breytingar, skattkerfisbreytingar, sem myndu nýtast hópi þeirra mjög vel, breytingar í húsnæðismálum o.fl., þannig að það mun nýtast sem flestum.
Síðan um innviðina þegar lýtur að innleiðingu starfsgetumats. (Forseti hringir.) Já, það þarfnast breytinga og við þörfnumst breytinga á vinnumarkaðnum í heild sinni. Sú vinna er hafin en henni verður ekki lokið á einni viku eða einum degi. (Forseti hringir.) Það þarf mikla hugarfarsbreytingu sem tekur langan tíma (Forseti hringir.) að innleiða og er gríðarlega mikilvægt að það sé gert í góðu samráði við sem flesta.