149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

vandi bráðamóttöku Landspítalans.

[15:32]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Eins og hæstv. ráðherra veit kannski grúska ég stundum í fjármálaáætlun. Eitt sem ég rak augun í í fréttum var að of mikið álag væri á bráðamóttöku. Í fyrri fjármálaáætlun er talað um að skoða eigi hlutfall sjúklinga á bráðamóttöku sem eigi að fá þjónustu annars staðar í heilsugæslu. En það er ekki að finna í þessari fjármálaáætlun og í rauninni eru engin önnur markmið sett fram.

Heilbrigðisráðherra leggur í þessari fjármálaáætlun fram 18 tillögur að aðgerðum til að laða fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa. Níu tillögur á að útfæra í heilbrigðisstofnunum. Nauðsynlegt er að fylgja þessum tillögum eftir og meta hvernig til tekst með útfærslu þeirra og árangur. Ég leita í markmiðunum og mælikvörðunum en ég sé ekkert um það. Ég sé ekki heldur neitt um kostnaðinn þrátt fyrir að sértækar aðgerðir séu á aðgerðalistanum. Miðað við allt, eins og fram kemur í úttekt embættis landlæknis á bráðamóttöku Landspítala, er ákveðnum atriðum þar ábótavant.

Vandinn liggur í þjónustu við sjúklinga sem bíða eftir innlögn vegna þess að loka hefur þurft legurýmum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og vegna sjúklinga sem lokið hafa meðferð á spítalanum en geta ekki útskrifast af því að úrræði skortir fyrir þá utan hans, einmitt vegna þess að þar vantaði líka hjúkrunarfræðinga. Það er mönnunarvandinn þegar allt kemur til alls. Greiningin á honum er sú að það er mönnunarvandi út af kynbundnum launamun, út af gerðardómi, út af ósanngjörnum vinnutíma, og, þegar allt kemur til alls, ósanngjörnum kjörum. Samt er gert ráð fyrir 0,5% kaupmáttaraukningu í fjármálaáætlun.

Þannig að ég velti því fyrir mér og spyr hæstv. ráðherra: Hvar eru peningarnir í þessu dæmi? Af því að það á að meta stefnu stjórnvalda í fjármálaáætlun. Hver er kostnaðurinn af henni? Ég finn þann kostnað ekki í fjármálaáætluninni. Ef það er enginn kostnaður í fjármálaáætluninni þá kostar þetta væntanlega ekki neitt eða þá að laun munu ekki hækka, sem er ástæðan fyrir mönnunarvandanum.