149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

vandi bráðamóttöku Landspítalans.

[15:34]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Við hv. þingmaður deilum áhuga á fjármálaáætlun, að hún endurspegli raunverulega áætlun og sé í samspili við stefnumótun í hverjum málaflokki fyrir sig. Við höfum orðið þess áskynja þessi fyrstu ár sem við höfum beitt þessu verkfæri að það þróast með hverju árinu sem líður og það er alltaf að skána, ef við getum sagt sem svo. En það er ekki orðið fullkomið og hv. þingmaður nefnir dæmi um mælikvarða sem eru kannski ekki bestu mælikvarðarnir til að endurspegla framför eða raunverulegt markmið um að við séum að gera betur frá einu ári til annars. Ég held því að við þurfum, í samstarfi við fjárlaganefnd og fjármálaráðuneytið, að þróa þetta verkfæri áfram.

Hv. þingmaður nefnir þær tillögur að aðgerðum sem lúta að starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. Því er til að svara að af þessum 18 aðgerðum voru níu sérstaklega merktar eins og kemur fram í máli hv. þingmanns. Það varð til þess að ég óskaði eftir því að þær yrðu teknar á dagskrá á sérstökum ráðherrafundi um samræmingu mála og skoðaðar sérstaklega. Niðurstaðan á þeim fundi var sú, þetta var í lok janúar ef ég man rétt, að mér var falið að hafa samband við allar heilbrigðisstofnanir og óska eftir mati hverrar stofnunar fyrir sig á möguleikanum á því að koma þessum tillögum til framkvæmda og mati á því hvert væri utanumhald, m.a. að því er varðaði kostnað.

Nú er ég að fá þessi svör í hendur og ég deili óþolinmæðinni með hv. þingmanni, ég myndi vilja að þetta gengi miklu hraðar. En þarna erum við að tala um þann hluta sem lýtur að öðrum þáttum starfsumhverfisins en beinlínis þeim þáttum sem eru á borði samninganefndar ríkisins og hjúkrunarfræðinga.

Ég vonast til þess að ég geti farið í smáatriðum yfir málið með hv. þingmanni þegar ég er komin með svör frá öllum stofnunum í hendur (Forseti hringir.) en mér var tjáð að þau væru öll komin í hús.