149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

vandi bráðamóttöku Landspítalans.

[15:38]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Í þessu efni vil ég segja það að lífið er bara flóknara en svo að við römmum það allt saman inn í einni fjármálaáætlun. Það eru fleiri þættir sem við verðum að taka til. Hér hefur til að mynda verið rætt að nauðsynlegt sé að leggja fram, í ljósi breyttra forsendna, nýja fjármálastefnu. Þá erum við komin með nýjan grunn.

Stefnumótun á sér stað í öllum ráðuneytum og í heilbrigðisráðuneytinu hefur átt sér stað stefnumótun í heilbrigðismálum. Hún er núna á lokasprettinum hér til afgreiðslu frá Alþingi. Í kjölfarið mun ég leggja fram starfsáætlun í heilbrigðismálum til fimm ára. Hún rímar að allmestu leyti við fjármálaáætlun og hún á að gera það til fulls þegar fram líða stundir. En meðan við erum að ná tökum á þeim verkfærum sem við höfum fyrir framan okkur og meðan við höfum, sem betur fer, ríkisstjórn sem situr nógu lengi til að klára það að halda utan um ferlið, þá sjáum við vonandi til lands í því að þessar stefnur rími allar saman.