endurskoðun fjármálastefnu og málefni sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég hef svo sem sagt áður í þessum sal að til þessa ríkisstjórnarsamstarfs hafi verið stofnað um stóraukin útgjöld ríkissjóðs og raunar einhvers konar sameiginlega tilhögun þessara þriggja flokka til einhvers Íslandsmets í útgjaldaaukningu ríkissjóðs á jafn skömmum tíma. Nú er ríkisstjórnin hins vegar í nokkrum vanda því að hefðbundin, nokkuð mjúk efnahagsaðlögun setur hana í verulegan vanda þegar kemur að auknum útgjöldum. Ríkisstjórnin hefur jú strax ákveðið að boða endurskoðun fjármálastefnu sinnar til þess að þurfa ekki að slá neins staðar af.
Það leiðir hugann að stöðu sveitarfélaganna í útgjaldagleði ríkisins. Fram kom við framlagningu fjármálaáætlunar hér í vetur að ekkert samráð var haft við sveitarfélögin, ekkert samkomulag var gert við sveitarfélögin um þær byrðar sem þar voru þó lagðar á sveitarfélögin. Framlög í jöfnunarsjóð voru fryst. Gerð var krafa um meiri afgang af rekstri sveitarfélaganna þrátt fyrir augljós merki um kólnun í hagkerfinu og raunar, til þess að kóróna þetta allt saman, lagði ríkisstjórnin síðan töluverðar byrðar á sveitarfélögin í kjarasamningum án þess að hafa neitt sérstakt samráð við þau sömu sveitarfélög um þær byrðar eða þann kostnað. Þannig að bæði skerti ríkisstjórnin framlögin til sveitarfélaganna, lagði á sveitarfélögin auknar kröfur um afgang og lagði að auki ýmsan kostnað á sveitarfélögin.
Nú þegar ríkisstjórnin ætlar að endurskoða fjármálastefnu sína hlýtur hugur okkar að leita til sveitarfélaganna og hvort ekki hafi verið nýtt tækifærið núna þegar verið er að leggja í þessa vinnu aftur að gera samkomulag við sveitarfélögin um þeirra þátt í málinu og tryggja að þau ráði við þau verkefni sem þeim eru falin í þessum efnum.
Þess vegna spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Mun samkomulag við sveitarfélögin liggja fyrir þegar ný fjármálastefna verður lögð fram innan fárra daga?