149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

endurskoðun fjármálastefnu og málefni sveitarfélaga.

[15:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Fyrst vil ég nefna að hv. þingmaður gerði hér að umtalsefni útgjaldaaukningu undanfarinna ára, sem hefur verið algjörlega sjálfbær. Við höfum skilað metafgangi á fjárlögum á undanförnum árum, uppsafnað nokkrum hundruðum milljarða, ekki síst ef teknir eru með óreglulegu liðirnir. Útgjaldahliðin sem hlutfall af landsframleiðslu hefur verið nokkuð stöðug þannig að ég kannast ekki við að á útgjaldahliðinni — jafnvel þótt verulega hafi verið aukið í víða, enda mikil þörf á og kallað eftir því í kosningum — hafi menn stefnt stöðunni í eitthvert óefni. Ég sé ekki að það sé neitt annað að fara að gerast en að við fáum eðlilega lendingu jafnvel þótt gríðarlega mikil breyting sé að verða á skömmum tíma á hagvaxtarspám, þ.e. við förum úr því að hafa spá um nokkuð þokkalegan hagvöxt, rúmlega 2%, seinna lækkanir í 1,7, 1,8 og núna eru menn að segja samdrátt upp á 0,2, að þá geti ríkisfjármálin verið í jafnvægi. Þetta finnst mér mikilvægt að nefna.

Varðandi samtalið við sveitarfélögin er það miður að ekki skuli hafa tekist að ljúka því formlega. Það hefur ávallt tekist fram til þessa. Við munum leggja áherslu á að reyna að ljúka samkomulagi við sveitarfélögin, en það er stutt til stefnu og spurning hvort það verður einfaldlega ekki að reyna að ljúka því áður en þingið klárar fjármálaáætlunina endanlega. Ég myndi vonast til þess að það gæti tekist. Það er um tiltölulega fá atriði að semja og staða sveitarfélaganna í fyrra sýnist mér, þegar uppgjör eru að skila sér, hafa verið verri heldur en við sáum fyrir. Þau hafi að meðaltali og í heildina litið verið rekin með halla, (Forseti hringir.) sem er miður, vegna þess að við vorum að vonast til þess að þau yrðu með fjármál sín í jafnvægi.