149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

endurskoðun fjármálastefnu og málefni sveitarfélaga.

[15:44]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Til að ná samkomulagi eða samningum þarf yfirleitt að tala saman. Samkvæmt mínum heimildum er ekki verið að tala neitt saman. Það er ekkert verið að ræða við sveitarfélögin eða þau fengin að borðinu að nýju eftir að það mistókst raunar, aftur út af samtalsleysi, algjöru samtalsleysi, í aðdraganda þeirrar fjármálaáætlunar sem var lögð fram í lok mars. Ég vona þá að hæstv. ráðherra bretti upp ermar og boði sveitarfélögin til fundar.

Það liggur í augum uppi að þeir kjarasamningar sem hér voru gerðir leggjast af meiri þunga á sveitarfélögin, sem eru með talsvert fjölmenna hópa láglaunafólks á sinni launaskrá, en á ríkissjóð sjálfan. Þar af leiðandi er mjög sérkennilegt að halda til streitu kröfu um bætta afkomu og frystingu á framlögum til sveitarfélaganna. Í raun og veru má segja að ríkisstjórnin sé að einhverju leyti að fjármagna útgjaldagleði sína með því að svelta sveitarfélögin í landinu. Það er (Forseti hringir.) auðvitað algerlega óviðunandi og óviðunandi að ríkisstjórnin ætli sér að velta því vandamáli yfir á þingið.