ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Varðandi fyrra atriðið sætir það furðu að íslenska ríkisstjórnin virðist ekki vera meðvituð um hvernig þetta mál gekk fyrir sig í Noregi og norsku fyrirvarana. Við höfum reyndar ekki haft tækifæri til að spyrja hæstv. utanríkisráðherra af því að hann er týndur en hæstv. fjármálaráðherra virtist ekkert kannast við það mál. Það er í raun óskiljanlegt þegar um svona stórt mál er að ræða, mál sem menn hafa verið að reyna að finna út úr hvernig þeir geti komið í gegnum þingið, að þeir skuli ekki einu sinni líta til þeirrar aðferðar sem reynt var að notast við í Noregi og koma með miklu veikari aðferð hér inn. Þó dugði sú norska ekki til.
Þá að seinna atriðinu sem hv. þingmaður nefndi, sem er fjórði orkupakkinn. Hann segir mér fréttir, að rétt í þessu hafi menn verið að klára gerðirnar fyrir fjórða orkupakkann sem við á Alþingi höfum ekki fengið nokkra einustu kynningu á. Á sama tíma ætlast ríkisstjórnin til þess að við innleiðum þriðja orkupakkann með þeim rökum að hann sé óhjákvæmilegt framhald af fyrsta og öðrum sem segir okkur um leið að með sömu rökum verður ætlast til þess að við innleiðum, gleypum hráan, fjórða orkupakkann sem afleiðingu af því að hafa innleitt þann þriðja.
Það sýnir okkur svo að ekki verður um villst að við þurfum akkúrat það sem hv. þingmaður spyr um, að fá undanþágur nú frá þriðja orkupakkanum til að sökkva ekki dýpra í fenið, ef svo má segja, til að lenda ekki í því að ríkisstjórnin skelli að lokinni afgreiðslu þriðja orkupakkans fjórða orkupakkanum á borðið og segi: Við innleiddum þann þriðja, nú verðum við að gjöra svo vel og innleiða þann fjórða sem leiðir af þeim þriðja.
Það hlýtur að vera að það sé eina vitið að bíða með afgreiðslu þriðja orkupakkans þar til menn hafa áttað sig á samhenginu við þann fjórða.