149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:26]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Auðvitað hryggir það mann þegar maður sér skrif eða ræður haldnar með þeim orðum að menn séu einhvern veginn að breyta út frá þeirri samfélagsmynd sem við höfum byggt upp á Íslandi um að við séum frjálst og opið samfélag. Við bjóðum fólk velkomið til að vinna með okkur og vera með okkur og við viljum taka þátt í alþjóðasamstarfi. Við erum eyja í miðju Atlantshafi og erum þannig háð því að eiga í alþjóðlegu samstarfi. Ég veit ekki um einn einasta þingmann sem vill hætta eða segja sig frá slíku samstarfi. Við getum hins vegar alveg haft og megum hafa skoðanir á því hvernig það samstarf lítur út, hvernig það fer fram og hvað við viljum setja undir í því samstarfi. Ég held að spurningin sem við erum með á borðinu hjá okkur núna sé: Viljum við leggja eina af grundvallarforsendum þess að við getum búið hér sem fullvalda og frjálst ríki á borðið og/eða vísa því að einhverju leyti í hendur á öðrum aðilum, þ.e. orkunni, því að við getum sjálf ráðið, framleitt, ráðstafað, verðlagt og nýtt þá miklu auðlind sem við höfum á Íslandi? Auðlindir hvers ríkis eru eitt það mikilvægasta sem ríkin eiga. Ég hef komið til lands þar sem engar náttúruauðlindir eru. Það land er hins vegar eitt það fremsta í heiminum þegar kemur að tækni og slíkri þróun. Þar líta viðkomandi stjórnvöld og þjóðin sjálf á sig sem auðlindina. Menntun og framþróun í tækni er auðlindin. Í því landi er verið að verja það forskot sem þar er.

Hér þurfum við að verja raforku okkar á sama hátt og það eigum við að sjálfsögðu að gera með kjafti og klóm. Við eigum ekki að taka þetta skref sem nú stendur til að taka vegna þess að það hefur ekkert með fullvalda og frjálst ríki að gera. (Forseti hringir.) Það hefur einfaldlega að gera með undirstöðu þess að búa hér á Íslandi.