ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka kærlega fyrir svarið. Það er merkilegt að heyra að þetta sé rétt svo komið fram og að boðaðar séu breytingar á ACER. Mér þætti vænt um, eins og svo mörgum öðrum hér inni, að vita í hverju sú breyting felst. Það leiðir mig að næstu spurningu.
Nú liggur fyrir að okkur er gert að greiða atkvæði um orkupakka þrjú ef allt gengur eftir sem stjórnarflokkarnir vilja og jafnvel fleiri. Þá velti ég fyrir mér: Getum við virkilega verið að greiða atkvæði um orkupakka þrjú? Getum við tekið upplýsta ákvörðun þegar við höfum ekki séð orkupakka fjögur?
Ég hef hlustað eftir því þegar hv. þingmaður segir að hugsanlega hafi verið gerð einhver mistök við innleiðingu á orkupakka eitt og orkupakka tvö. En mér finnst ég líka hafa heyrt að þeir pakkar hafi ekki endilega verið lagðir mikið fram á þingi. Mig langar að fá smáskýringu á því hvort þingið hafi á þeim tímapunkti haft aðkomu að því, en alla vega sérstaklega hvort við getum tekið upplýsta ákvörðun og greitt atkvæði um orkupakka þrjú þegar við höfum ekki séð hvað felst í orkupakka fjögur og svo jafnvel orkupakka fimm.