ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég tel ekki rétt að klára þetta mál með þeim hætti sem vilji stendur til hér, eins og það lítur út. Í fyrsta lagi er að mínu viti ekki nógu skýrt að hafið sé yfir allan stjórnskipulegan vafa að við getum gert það með þessum hætti. Ég hef áhyggjur af því að við tökum hér enn eitt skref inn á samevrópska orkumarkaðinn með því að innleiða þessar tilskipanir. Við erum að innleiða hugmyndafræðina. Við erum að innleiða verkfærin og við eigum að innleiða markmiðin sem felast í orkustefnu Evrópusambandsins.
Því til viðbótar er ljóst að orkupakki fjögur er beint framhald af þessum þriðja orkupakka og það er algjörlega kýrskýrt að í honum er að finna efni sem tekur mið af og þróar áfram það sem kemur fram í þriðja orkupakkanum. Því hljótum við að kalla eftir því að þetta verði rýnt saman, að horft verði á þá heild sem þarna er á ferðinni þannig að unnt sé að taka ákvarðanir byggðar á því.
Hvort sem maður kallar þá samlíkingu grín sem við höfum talað um, að verið sé að borða alla pylsuna í smábitum, þessa svokölluðu salamítaktík, eða hvort verið er að gefa okkur þetta inn með skeið, eins og hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson sagði, þá er mikilvægt fyrir okkur að sjá hvort salamípylsan sé skemmd í endann. Við getum ekki haldið endalaust áfram að taka bita og bita ef við sjáum ekki heildina.
Með þessu máli er ég að reyna að höfða til þess ágæta fólks sem er á þingi og vill styðja þetta mál. En ég held að það hafi ekki sökkt sér ofan í hvaða afleiðingar það hefur að klára það núna með þessum hætti fyrir framhaldið. Ég held að það sé mjög mikilvægt að reyna að fá fólk til að skoða það.