149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:08]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Forseti. Ég skal viðurkenna að það er líklega rétt hjá hv. þingmanni að þessir norsku fyrirvarar hafi enga raunverulega þýðingu vegna þess að Evrópusambandið lítur einfaldlega fram hjá slíkum tilburðum, fram hjá því að menn reyni að setja eigin fyrirvara án þess að það fari í gegnum það kerfi sem leiðir af EES-samningnum. En getur þó ekki hv. þingmaður tekið undir að þessir fyrirvarar eða tilraunir Norðmanna til fyrirvara gefi til kynna hvaða hættur fylgi þriðja orkupakkanum? Það að Norðmenn skuli telja sig þurfa að fara fram á undanþágur til að mega lækka raforkuverðið, til að mega nýta raforkuna í atvinnuuppbyggingu innan lands í Noregi? Er það þá ekki sérstakt áhyggjuefni fyrir okkur að innleiða þennan orkupakka ef hann kemur í veg fyrir þetta tvennt hér, að við getum boðið áfram upp á lágt verð og nýtt orkuna til að stuðla að atvinnuuppbyggingu innan lands?