149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:11]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Forseti. Ég ætla að byrja á hjákátlegu sjálfshóli og þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar að ræða við hv. þingmann, sem er löglærður, um fyrirvara sem gerðir hafa verið af hálfu íslenskra stjórnvalda við þessa innleiðingu. Sumir þeirra hafa verið týndir um hríð en eru fundnir aftur hér í reglugerðarformi. Aðrir byggjast á sameiginlegum skilningi sem var annaðhvort fenginn yfir sódavatni og samloku eða kaffi og vínarbrauði milli tveggja einstaklinga úti í heimi og/eða hér eða í síma. Og mig langar til að spyrja hv. þingmann um þá fyrirvara, sem þannig hafa verið settir hér á Íslandi við þessa innleiðingu, hvort þeir haldi, hvað honum finnst um það.

Einn af þingmönnum Framsóknarflokksins hefur lýst því þannig að í þessu máli sé Framsóknarflokkurinn ekki bara með belti og axlabönd heldur með álímdan hártopp, í smekkbuxum og nýjum skóm. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji að slík múndering dugi varðandi fyrirvara sem sá flokkur hefur sett við þessa innleiðingu.

Þar sem hv. þingmaður er löglærður langar mig til að biðja hann um að fara yfir þessa fyrirvara með okkur og skýra þá eins og hann getur á tveimur mínútum og gera okkur, og þeim sem fylgjast með hér, grein fyrir því hvernig þetta muni geta staðist þegar á hólminn er komið. Ég held að á eftir muni ég kannski sjálfur fara í einhverja fyrirvara, sögur af fyrirvörum, þannig að ég held að það væri mjög mikill fengur að því ef hv. þingmaður myndi vilja fara yfir þetta með okkur.