ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Við þökkum upplýsingarnar um að við séum stödd hér í síðari umr. Ég held að það hafi verið orðið nokkuð ljóst, en hér er flutningsmaður tillögunnar í húsi og hefur verið um nokkurt skeið, reyndar alla þessa síðari umr., hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem er formaður utanríkismálanefndar. Ef hæstv. utanríkisráðherra sér sér ekki fært að vera hér og fylgja þingsályktunartillögu sinni úr hlaði sökum anna, er þá ekki eðlilegt að einhver grípi boltann, fylgi málinu eftir og láti svo lítið að taka umræðuna við okkur, svara þeim spurningum sem brenna á okkur og standa við þær fullyrðingar sem settar hafa verið fram í ræðum og riti um m.a. neytendaverndina, m.a. innihald tilskipunar nr. 72/2009, og að fólk skýri mál sitt og leiði okkur, þessa villuráfandi sauði sem (Forseti hringir.) hér standa og ræða málið í þaula, af villu okkar vegar?