ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég tek undir þá ósk að gott væri að hafa hæstv. utanríkisráðherra í húsi. Nokkrar spurningar hafa vaknað þar sem við höfum farið á dýptina í þessu máli og eftir því sem maður veit meira þarf maður fleiri svör. Það er einhvern veginn þannig að þegar maður kafar ofan í mál vakna fleiri og fleiri spurningar og þær spurningar höfum við ítrekað lagt hér fram og höfum ekki enn fengið raunveruleg svör við þeim. Þess vegna væri mjög gott ef utanríkisráðherra sæi sér fært að vera hérna með okkur.