ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég ætla að bregðast við nokkrum atriðum sem komu fram í umræðum um fundarstjórn forseta. Í fyrsta lagi var hæstv. ráðherra hér fyrstu daga umræðunnar, einnig í síðari umr., hann var á staðnum og ekki var sérstaklega beint til hans spurningum. Síðan var auðvitað fjórði orkupakkinn ræddur í nefndinni á fundum nefndarinnar vegna þessa máls og ráðuneytið svaraði þar öllum þeim spurningum nefndarmanna sem komu vegna þess pakka og lýsti vel hvað hafði birst, hvað væri enn þá í vinnslu og hver staðan væri á þeim orkupakka.
Síðan er því beint til mín að taka þátt í þessari umræðu. Já, hv. þingmaður, ég tók þátt í umræðunni í 17 klukkutíma, svaraði margoft sömu spurningunum og leiðrétti margoft sömu rangfærslurnar. Ég sé bara ekki lengur ástæðu til að svara því þegar ekki er tekið mark á einu einasta sem maður segir. Þá hættir maður á einhverjum tímapunkti (Forseti hringir.) að taka þátt í umræðunni. Ég ætla að ítreka — og kem kannski að því síðar til að virða tímamörk forseta.