149. löggjafarþing — 108. fundur, 22. maí 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að taka sérstaklega fram að ég fagna því að sjá hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur meðal okkar og að hún hafi meira að segja tekið til máls. Mér þætti reyndar vænna um ef hún tæki þátt í umræðum sem við eigum hér við síðari umr. vegna þess að spurningar hafa vaknað af því að við höfum lært eitthvað nýtt sem við vissum ekki áður. Þess vegna væri ósköp indælt að fá svör við þeim spurningum.