149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:01]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek mjög undir það sem hv. þingmaður sagði í þessu seinna andsvari. Og auðvitað er það þannig að hv. þingmenn eins og hv. formaður utanríkismálanefndar þarf ekkert að taka þátt í þessu með okkur ef hún telur sig vera búna að gera skyldu sína og nennir ekki að hanga yfir okkur. Það er hennar fullkomni réttur. Það er hins vegar angi af þessu máli, tel ég, sem er plagsiður í íslenskri pólitík, að menn viðurkenna ekki mistök hvað sem á dynur. Verið er að grafa holu upp á 100 milljarða í Vatnsmýrinni af því að menn gangast ekki við mistökum. Hér er verið að offra framtíð þjóðarinnar, barnanna okkar og barnabarna, af því að menn viðurkenna ekki mistök. Og halda menn að þann hóp sem hér situr inni langi eitthvað í fyrirsjáanlegri framtíð til að segja við þessa sömu aðila: Við sögðum ykkur þetta. Við vöruðum ykkur við. Það er ekki það sem okkur langar til. Við viljum taka saman höndum með þessu fólki og ganga þannig frá þessu máli að það sé til sóma.