149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:26]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi ráðherra, segir í grein sem Morgunblaðið birti eftir hann um þriðja orkupakka ESB að ríkisstjórnin sé að fegra þann pakka og segi ekki heiðarlega frá álitum lögfræðinga um málið. Jafnframt varaði Hjörleifur við því í grein sinni að ESB verði færð yfirráð yfir auðlindum landsins í gegnum orkupakkann.

Núna er staðan þannig að utanríkisráðherra ætlar Alþingi samkvæmt ofangreindu að innleiða orkupakka þrjú með þeim fyrirvara að viðkomandi bindandi reglur hans komi ekki til framkvæmda nema þingið heimili lagningu sæstrengs til raforkuflutnings frá Íslandi. Hjörleifur Guttormsson segir í greininni, með leyfi forseta:

„„… þá þarf jafnframt að taka á nýjan leik afstöðu til þess hvort reglurnar standist stjórnarskrá“. Með þessu á að læða í gegn staðfestingu Alþingis á orkupakka þrjú, sem augljóslega stríðir gegn stjórnarskrá lýðveldisins“ — að hans mati og viti — „og óumdeilanlega yrði virkur ekki síðar en með lagningu sæstrengs.“

Það er ágætt að minnast þess að Friðrik og Stefán Már, sem okkur hefur verið tíðrætt um hér í dag, segja í álitsgerð sinni, með leyfi forseta:

„Það er réttur EES/EFTA-ríkjanna samkvæmt EES-samningnum að neita upptöku gerða í EES-samninginn og eftirfarandi innleiðingu á viðkomandi gerðum …“

Þeir segja áfram:

„Slíkt kallar hins vegar á sáttameðferð á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar, …“

Þeir gera einnig að umtalsefni þá annmarka sem birtast á boðuðum fyrirvara vegna sæstrengs, með leyfi forseta:

„Þessi lausn er þó ekki gallalaus.“

Lögmennirnir taka fram að ef Alþingi aflétti fyrirvörunum við fyrirliggjandi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 5. maí 2017 ber þinginu m.a. að gæta að því hvort þær ESB-gerðir sem ákvörðunin tekur til samræmist stjórnarskrá lýðveldisins. Það er sama hvort sæstrengur sé til staðar eða ekki. Þeir segja, með leyfi forseta:

„Það breytir því þó ekki að þriðji orkupakkinn verður ekki tekinn upp í íslenskan landsrétt nú nema hann standist stjórnarskrána. Verður ákvörðun Alþingis um hvort aflétta eigi stjórnskipulegum fyrirvara Íslands við þriðja orkupakkann og innleiða hann í íslenskan landsrétt að miðast við þá forsendu að grunnvirkjum yfir landamæri verði komið á fót hér á landi, …“

Þetta er býsna skýrt hjá þeim félögum og ég skil vel að Hjörleifur Guttormsson hafi vitnað til þeirra með svo afgerandi hætti og hann virðist gera. Ég er farin að hallast á þá skoðun að við séum að byrja á röngum enda. Það er verið að innleiða í rangri tímaröð það sem er að gerast og ég velti fyrir mér af hverju það er gert. Ég þreytist sjaldan á að fjalla um það að 23. september nk. mun stjórnlagadómstóll í Noregi taka sitt mál til úrskurðar. Þar með finnst mér eðlilegt að við bíðum í nokkra mánuði hér á landi til að vita með óyggjandi hætti hvaða niðurstaða verður hjá þeim í Noregi.

Hitt er svo það sem við höfum ítrekað bent á að það er lagalega réttast að vísa orkupakka þrjú til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Með því er ekki verið að gefast upp fyrir kerfinu. Við erum einmitt að virða þann auð sem finnst í embættismönnum og fá þá til að framkvæma það sem okkur finnst vera eðlilegt að gera á þessu stigi málsins. Það hlýtur að vera akkúrat núna sá tímapunktur sem við leitum réttu leiðanna. Mér finnst kannski gáfulegast að byrja á því.