ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held að það sé akkúrat málið, af hverju liggur svona ofboðslega á þessu máli? Af hverju er þessi gríðarlegi þrýstingur frá, ég leyfi mér að segja Evrópusambandinu, að klára þetta? Jú, það er vegna þess að markmiðssetningar sambandsins eru á þann veg að það þarf nauðsynlega á löndum að halda eins og Íslandi og Noregi, sem eiga gríðarlegar auðlindir af endurnýjanlegri hreinni orku sem falla fullkomlega að markmiðum sambandsins í loftslagsmálum fram til ársins 2050, og að flýta sem mest má aðgengi Evrópusambandsins að þeim auðlindum. Hrein orka fyrir allt Evrópusambandið.
Væri ekki alveg fullkomið, fyrst Norðmenn eru með þetta uppsteyt að vera að þvælast með einhverja fyrirvara, að svara þeim ekki í 14 mánuði, 15 eða 16 eða hvað þarf til? Að svara þeim hreinlega ekki og fá svo Íslendingana til að samþykkja innleiðinguna og segja svo í pólitískri yfirlýsingu: Jú, jú, þetta er allt í lagi. Við kíkjum á þetta, þið farið bara heim og segið að þetta sé ígildi samnings.
Þegar það er búið eru Ísland og Liechtenstein komin á sama punktinn, þ.e. full innleiðing. Þá er Noregur kominn í vanda með fyrirvara sína, að vera eina ríkið þegar málið í raun er svo vaxið að meiri hluti EES-landanna er bara alls ekki sáttur við þessa innleiðingu. Einhver hlýtur ástæðan að vera. Ég spyr hv. þingmann: Getur verið að svona liggi í málinu?