ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Þetta er áhugaverð pæling því að í upphafi fengum við þær fréttir að við þyrftum að samþykkja þetta þar sem við værum það ríki sem stæði eftir, hin ríkin væru búin að innleiða allt hjá sér og allt í góðum málum. Þess vegna er svo mikilvægt að við fáum þessa síðari umr. hér um málið þar sem við lærum, eins og ég hef kallað það, nýjan sannleika. Segjum að þetta gangi eftir, að við innleiðum orkupakka þrjú, þá er einmitt hægt að nota sömu rök gagnvart Noregi. Þess vegna ættum við að bíða í nokkra mánuði til að fá málið algerlega á hreinan stað og byrja svo þaðan og taka örugg og ákveðin skref í þá átt að ganga að þessu samkomulagi á okkar forsendum.
Það er eiginlega svolítið furðulegt að upplifa þennan hraða sem á að vera á málinu. Það er líka dálítið furðulegt að upplifa vöntun á, ég vil segja fjölmiðlaumfjöllun. Við höfum einna helst lesið greinar í Bændablaðinu eins og við höfum ítrekað bent á. Greinar hafa birst í Morgunblaðinu. En víðar höfum við varla séð ábyggilega umfjöllun um þetta gríðarlega mikilvæga mál sem orkupakki þrjú er og í framhaldinu orkupakki fjögur. Það virðist enginn gefa þessu gaum. Það virðist enginn gefa því gaum á hvaða leið við erum. Því er haldið fram að við séum að ala á ótta. Við erum bara raunhæf, við viljum standa fast í lappirnar. Við viljum vita hvað við erum að gera og við viljum vita hvert við eigum að stefna.