149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:55]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir ræðuna. Hún var góð. Þetta er algjört lykilatriði og það er svo grátlegt að geta ekki fengið þingmenn, flytjendur málsins, til að setjast niður og ræða þetta við okkur og standa hér upp í ræðustól eða að fá hæstv. forseta Alþingis til að hlusta, ekki bara að passa upp á að form fundarins sé að mestu leyti rétt, heldur til að hlusta á hvað verið er að segja hérna.

Það er bullandi þversögn í málflutningnum. Hann er holur. Er verið að innleiða orkupakka þrjú að fullu eður ei? (Gripið fram í: Alla vega ekki orkupakka fjögur.) Þetta var gott svar. Við erum alla vega ekki að innleiða orkupakka fjögur, segir hv. varaforseti þingsins og þingmaður, Bryndís Haraldsdóttir, vissari er hún ekki. En við erum sem sagt að innleiða orkupakka þrjú að fullu. Það er nefnilega það sem við höldum að við séum að gera, við sem stöndum hér og mælum á móti þessu. Vegna þess að þegar lög og reglugerðir og lögskýringargögn eru skoðuð kemur í ljós að þetta snýst ekki á nokkurn hátt um neytendavernd fyrir Íslendinga. Þetta snýst um neytendavernd fyrir Evrópubúa. Og full innleiðing brýtur að öllum líkindum í bága við stjórnarskrána. (Forseti hringir.)

Er það skoðun hv. þingmanns að innleiðingin sem slík og fyrirvararnir sem við hana (Forseti hringir.) hafi verið gerðir séu til þess (Forseti hringir.) eins að passa upp á að stjórnarskrá Íslands sé ekki brotin (Forseti hringir.) en að öðru leyti sé innleiðingin að fullu?