ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það sem stingur í augun við þann málatilbúnað sem hér er uppi varðandi innleiðingu á orkupakka þrjú er einmitt þetta andvaraleysi. Menn vita í raun ekki hvaða afleiðingar innleiðingin, eins og hún er boðuð, mun hafa.
Ég tók eftir því að hv. þingmaður fór í mjög góðri ræðu yfir fyrirvarana sem hér eru settir. Sumir hafa týnst, reyndar hafa þeir fundist aftur o.s.frv. og eru ekki komnir á stjá. Þeir verða settir í reglugerð síðar. Ekki beint sterkt. Þannig að hugleiðingar mínar og það sem ég vil spyrja hv. þingmann um er sem sagt hugur hans til þess arna, hvernig fyrirvararnir eru settir fram, hvort þeir dugi yfir höfuð, hvort þeir séu það sem við mundum kalla „lögformlegir“, vegna þess að ég held, eins og ég sagði í upphafi, að menn séu mjög andvaralausir um þetta mál. Ég held líka, og nefndi það í ræðu minni áðan, að menn séu haldnir því pólitíska heilkenni að geta ekki horfst í augu við að hafa gert mistök, að geta ekki játað á sig mistök. En þegar ljóst verður að þetta eru mistök eru þau bara orðin svo hroðalega dýr, bæði fyrir þjóðina og fyrir þessa þingmenn sjálfa, að ekki verður aftur snúið.
Þannig að mig langar sérstaklega að spyrja hv. þingmann út í fyrirvarana sem boðaðir eru með þessu máli: Halda þeir? Eru þeir nægir? Hvernig mætti bæta þá? Það er það sem mig langar að vita.