149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:07]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef lengi haldið því fram, eða u.þ.b. jafn lengi og ég hef verið í pólitík, að innleiðingu annars orkupakkans, sem Íslendingar innleiddu með fádæma „bravör“ og voru miklu kaþólskari en páfinn, og ég hef lengi haldið því fram að í raun og veru hefðum við ekki þurft að innleiða þann pakka og hefðum hæglega getað fengið undanþágur frá því. Ég hef haft það á tilfinningunni mjög lengi og er eiginlega staðfastur í því áliti mínu að við hefðum alls ekki þurft að innleiða þann pakka.

Mig langar til þess að heyra ofan í hv. þingmann hvort hann geti verið mér sammála að þessu leyti, vegna þess að að ég tel í sjálfu sér að ógæfa okkar hafi að mörgu leyti hafist akkúrat þar. Þegar fyrsti pakkinn var ákveðinn og orkan er hlutsett sem vara, var það út af fyrir sig alvarlegt. En þessi skipting fyrirtækjanna á sínum tíma í dreifingu og framleiðslu voru að mínu mati ótrúleg mistök og spurningin er: Þurftum við að gera það?