149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:12]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Jú, eins og ég hef skilið málið í það minnsta eru þessi svæði ekki endilega landfræðileg svæði heldur er horft á markaðinn og honum skipt upp eftir einhverju fyrirkomulagi sem ég hef ekki, því miður, þekkingu á hvernig verður nákvæmlega rökstutt eða útfært.

Hlutverk þessara svokölluðu kerfisstjóra mun að sjálfsögðu taka breytingum í samræmi við þær breytingar sem verða á ACER stofnuninni og hlutverki hennar. Þá munu þær breytingar að sjálfsögðu ná til Íslands líka í það minnsta ef við innleiðum þennan orkupakka þrjú eins og hann er núna, gerðir 713 og 714, og þá tel ég að við séum að opna algerlega upp á gátt fyrir þær breytingar sem verða í framhaldinu á þeirri stofnun. Þegar ég segi þetta er ég alveg meðvitaður um að eitthvert tveggja stoða ferli er búið að skrifa upp þar sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur ákveðið hlutverk og ágreiningur á að fara í það ferli og slíkt. En það er bara ekki trúverðugt ferli þar sem ACER stofnun hefur öll tögl og hagldir í því ferli öllu.

Ég kýs að hafa það svona til hliðar. Það er miklu meira vægi í að reyna að losna undan því að innleiða þetta.

Hv. þingmaður spurði líka um orkunýtni bygginga. Það er eitt af því sem er gríðarlega mikilvægt að halda á lofti í viðræðum um orkupakka fjögur vegna þess að hér á Íslandi eru endurnýjanlegir orkugjafar notaðir að mestu eða öllu leyti.