ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Þetta er alveg stórmerkileg umræða vegna þess að eftir því sem við höfum tækifæri til að ræða málin og lesa okkur til þá færumst við alltaf lengra og lengra og við það vakna fleiri og fleiri spurningar. Það er svolítið leitt að það sé þannig að stjórnarliðar haldi því fram og mjög mikið á lofti að þetta snúist um neytendavernd og þetta snúist um aukið gegnsæi og allt það. Það er að mínu viti ekkert annað en íslensk þýðing á þessum pólitísku pælingum Baudenbachers sem kom um daginn og var, ég vil leyfa mér að segja, kostaðar af utanríkisráðherra. Ég vil gjarnan halda því fram að við eigum að halda umræðunni áfram og vil taka undir með hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni í þeim efnum.