ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Er það ekki rétt munað hjá mér að túlkun meiri hlutans sé eiginlega sú að verið sé að fresta því að kveða upp úr um hvort verið sé að ganga á stjórnarskrána með þessu, gera það einhvern tímann að seinni tíma vandamáli? Kannski er það vegna þess að menn gera sér grein fyrir að hinn svokallaði fjórða orkupakki er framhald af þeim þriðja. Kannski er það út af einhverju öðru, ég geri mér ekki grein fyrir því.
Það er hins vegar mikilvægt að fá svör við þeim spurningum sem hv. þingmaður hafði hér uppi um hvort þær greinar sem þingmaðurinn nefndi leggi þær skyldur á herðar okkur að við getum í rauninni ekki hamlað eða komið í veg fyrir að viðskipti eins og þingmaðurinn lýsti eigi sér stað.
Ég vil hins vegar ítreka það sem ég hef sagt fyrr í dag í ræðum að mikilvægt er að horfa á heildarmyndina og heildarmyndin er sú að við erum í raun með tvo orkupakka undir hjá okkur. (Forseti hringir.) Ég læt máli mínu lokið.